MBL

Daníel Bjarnason stjórnar Brahms

✨Daníel Bjarnason stjórnar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í flutningi tveggja af ástsælustu verkum Johannesar Brahms: 1. sinfóníunni og Tvöfalda konsertinum fyrir fiðlu og selló.

Svið

Hof – Hamraborg

Enleikarar

Hranfhildur Marta Guðmundsdóttir & Guðbjartur Hákonarson

Verð

6.900 kr
Kaupa miða

Ferskt, fyndið og skemmtilegt!

✨Brahms er gjarnan talinn einn hinna þriggja stóru B-a tónlistarsögunnar Bach, Beethoven og Brahms og skipar þannig sess meðal áhrifamestu tónskálda vestrænnar tónlistar.
Einleikarar í Tvöfalda konsertinum eru hjónin Guðbjartur Hákonarson fiðluleikari og Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir sellóleikari. Guðbjartur hefur komið fram víða um Evrópu og Bandaríkin. Hann hefur meðal annars leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Konunglegu Dönsku Óperuhljómsveitinni, Dönsku Útvarpshljómsveitinni og Fílharmoníusveit Kaupmannahafnar.
Margir muna eftir mögnuðum leik Mörtu í Eldborgarsal Hörpu þegar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands flutti Joker – Live to Film til heiðurs Hildi Guðnadóttur í kjölfar Grammy-, Óskars- og Emmy-verðlauna hennar. Segja má að Marta hafi alist upp með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands enda er hún dóttir Guðmundar Óla Gunnarssonar sem stjórnaði hljómsveitinni í 23 ár.

Staðsetning

Hof-Hamraborg

Frumsýning

21. febrúar 2027
Secret Link