Fasteignamartröðin
✨Arnrún er á þrítugsaldri og þarf að finna sér nýtt þak yfir höfuðið eftir óvænt sambandsslit. Hún getur ekki flutt aftur í foreldrahús, líst illa á leigumarkaðinn og ákveður því að kaupa sína fyrstu íbúð.
Svið
Leikstjórn
Verð
Ferskt, fyndið og skemmtilegt!
✨Leikfélag Akureyrar sýnir beitt samtímaverk um kómískan frumskóg húsnæðismarkaðsins.
Meinfyndinn spegill á raunveruleika ungs fólks í dag þar sem persónusköpun í anda Sex and the City mætir absúrdveröld Kafka.
Arnrún er á þrítugsaldri og þarf að finna sér nýtt þak yfir höfuðið eftir óvænt sambandsslit. Hún getur ekki flutt aftur í foreldrahús, líst illa á leigumarkaðinn og ákveður því að kaupa sína fyrstu íbúð. Við tekur grátbroslegt og fáránlegt ferðalag í gegnum frumskóg bankastarfsmanna, fasteignasala og lánardrottna.
Verkið, sem er eftir litháenska leikskáldið Gabrielė Labanauskaitė, var valið besta erlenda leikritið á stærstu leikritunarhátíð Þýskalands árið 2023.
Leikstjórin og þýðing: Adolf Smári Unnarsson
Leikmynd og búningar: Brynja Björnsdóttir
Tónlist: Jóhannes Damian R. Patreksson
Hljóðhönnun: Gunnar Sigurbjörnsson
Ljósahönnun: Fjölnir Gíslason
Dramatúrg: Júlía Gunnarsdóttir
Hár og förðun: Harpa Birgisdóttir
Leikarar: Hjalti Rúnar Jónsson, Hólmfríður Hafliðadóttir, Jökull Smári Jakobsson, Urður Bergsdóttir, Vigdís Halla Birgisdóttir
Athugið: Aðeins sýnt í október og nóvember!
Staðsetning
Frumsýning