Friðrik Dór & SinfoniaNord

✨Stórtónleikar í Hofi og Hörpu þar sem popparinn Friðrik Dór og SinfoniaNord leiða saman hesta sína svo úr verður mögnuð tónlistarupplifun.

Svið

Hof – Hamraborg

✨Ekki missa af þessum sögulega tónlistarviðburði þar sem frábærir smellir Friðriks Dórs fá að hljóma í glænýjum og mögnuðum útfærslum SinfoniaNord.

Tónlist Friðriks Dórs á rætur í popptónlist og R&B. En hvað gerist þegar hún mætir heilli sinfóníuhljómsveit?

Friðrik Dór hefur fyrir löngu sungið sig inn í hjörtu þjóðarinnar og stimplað sig inn sem einn ástsælasti tónlistarmaður landsins. Hann skaust upp á stjörnuhimininn með laginu Hlið við hlið árið 2009 og hefur síðan þá samið hvern slagarann á fætur öðrum. Við syngjum öll með þegar lög eins og Í síðasta skipti, Dönsum eins og hálfvitar og Hringdu í mig byrja að óma. 

Hljómsveitarstjórn: Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir

Útsetningar: Þórður Magnússon og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson

Secret Link