Gæðablóð
✨Þrír ólíkir einstaklingar – ein sameiginleg reynsla.
Svið
Leikstjórn
Verð
✨Einlæg, beinskeytt og bráðfyndin sýning sem varpar nýju ljósi á íslenskan veruleika.
„Mig langar að túristar sjái mig og spyrji: Where is Hallgrímskirkja?“[ÞO1]
Rappari úr Vesturbænum, fyrrum knattspyrnumaður úr Garðabænum og tónlistarmaður úr miðbænum sameina krafta sína í skemmtilegri og hispurslausri sýningu. Davíð Þór, Jónmundur og Unnsteinn eiga það sameiginlegt að vera rammíslenskir, en geta jafnframt rakið uppruna sinn til tveggja heimsálfa.
Í þessari einlægu sýningu deila þeir reynslu sinni af því að alast upp á Íslandi og sviðsetja sprenghlægileg jafnt sem grafalvarleg atvik úr eigin lífi. Sýningin afhjúpar samfélag okkar á óvæntan hátt og veitir nýja innsýn í hinn margbreytilega veruleika. Eins og þeir segja sjálfir: „Ef þú ætlar að njóta lífsins sem litaður Íslendingur, þá þýðir ekkert að ætla að lifa bara venjulegu lífi.“ Sýningin naut mikilla vinsælda í Þjóðleikhúsinu á síðasta leikári.
Staðsetning
Frumsýning