Heimamenn í Hofi

Á þetta að vera fyndið?
 
Uppistandshópurinn Heimamenn snýr aftur í fjórða sinn og stígur nú á svið í Hömrum í Hofi á Akureyrarvöku.
Áhorfendur mega búast við fjölbreyttu kvöldi með fersku uppistandi, persónulegum pælingum, hversdagslegum uppákomum og sögum úr lífinu. Við hlæjum saman að samböndunum, börnunum, samfélaginu og öllu því sem verður aðeins bærilegra þegar maður fær að gera grín að því.
 
Á svið stíga:
🎤 Snæfríður Ingadóttir
🎤 Egill Bjarni Friðjónsson
🎤 Hannes Bjarni Hannesson
🎤 Svava Björk Ólafsdóttir
🎤Þórhallur Guðmundsson
🎤 Baddi Ingimarsson
 
Á síðasta uppistandi var troðfullt út úr dyrum og nú hlökkum við til að taka á móti enn fleirum í Hofi.
Húsið opnar kl. 20:00 og sýningin hefst kl. 21:00. Við mælum með að gestir mæti tímanlega.
 
Komið og eigið skemmtilegt kvöld með okkur, styðjið heimafólk á sviðinu og njótið Akureyrarvöku.
 
Á þetta að vera fyndið?
Það kemur í ljós.

Svið

Hamrar

Verð

Enginn aðgangseyrir

Dagsetning

29. ágúst

Tími

21:00

Secret Link