Helgi Björns & Reiðmenn vindanna
✨Þetta verður kvöld þar sem minningar lifna við og nýjar verða til. Tryggðu þér miða í tíma, þar sem Hamraborg fyllist hratt þegar vindar rísa.
Svið
Í yfir 40 ár hefur Helgi Björns sungið með þjóðinni. Lög hans lifa með okkur. Í gleði og gráti, í söknuði og sælu, í dansi og á dimmum dögum. Nú stíga Helgi Björns og Reiðmenn vindanna á stokk í Eldborg, ásamt sérstökum gestum, með tónleika sem fanga þennan sönglagaarf.
Þetta eru lögin sem við eigum saman og höfum sungið kynslóð fram af kynslóð. – Við þekkjum augnablikið þegar þú komst í hlaðið á hvítum hesti. – Við munum þegar vor var í augum þér. – Við höfum riðið sem vindurinn, staðið í stormi og sungið okkur í gegnum myrkur og ljós. Þetta kvöld verður eins konar ferðalag minninganna þar sem við upplifum kraft og hlýju, rokk og rómantík, sögur og samhljóm.
Að hætti Reiðmanna, sem er hljómsveit í toppformi, verður stemningin lifandi, einlæg og full af orku – þar sem salurinn syngur með. Þetta verða meira en bara tónleikar.