Í tunglsljósi á ís
✨Er Dóná ísilögð? Svarið við því fæst á þessum tónleikum sem enginn skyldi missa af.
Svið
Einsöngvarar
Verð
Nýárstónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og Tónlistarskólans á Akureyri.
✨ Nýárstónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og Tónlistarskólans á Akureyri þar sem íslensk sönglög og rímnadansar stíga í vænginn við Vínarvalsa svo kristalsljósakrónurnar dúa.
Áttatíu ára afmælisári Tónlistarskólans á Akureyri lýkur í janúar 2027. Af því hátíðlega tilefni taka Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Tónlistarskóli Akureyrar saman höndum og fagna nýju ári í álfhömrum Hamraborgar. Með þeim stíga á svið stórsöngvararnir Kristján Jóhannsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir.
Búið ykkur undir heljarinnar nýársveislu þar sem meðal annars verða flutt verk eftir Atla Heimi Sveinsson, Ingbjörgu Þorbergs, Sveinbjörn Sveinbjörnsson og Johann Strauss yngri.
Kristján Jóhannsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
Nemendur Tónlistarskólans á Akureyri[ÞO1]
Staðsetning
Frumsýning