Jóla-Lóla

✨Við kynnum fyrsta verk leikársins með stolti: Elskan er ég heima? eftir breska leikskáldið Laura Wade, í fyrsta sinn sett upp í íslensku leikhúsi!

Svið

Stóra sviðið

Leikstjórn

2:45 klst með hléi

Tilnefnd sem barnasýning ársins 2024!

Hin vinsæla fjölskyldusýning Jóla Lóla snýr aftur á aðventunni!

Heyrst hefur að þetta sé vinsælasta skógjöfin hjá jólasveinum í ár!

Jóla Lóla Skyrgámsdóttir er uppátækjasöm jólasveinastelpa sem á sér þann draum heitastan að fara til byggða og gefa börnum í skóinn. Vinur hennar, sem heitir Vettlingur, er ekki jafn æstur í ævintýraferðir því hann langar helst að vera heima í jólabústaðnum að pakka inn gjöfum. Saman leggja þau þó af stað með Skyrgámi og lenda í svaðilförum þar sem hið pakka-étandi Jólafól kemur við sögu og óbermin Mykjuskán og Kolsteinn bíða í leynum. Þá á eftir að nefna ömmu hennar Jóla Lólu, sem allir kalla Grýlu, en heitir í rauninni Kríla og er krúttleg rokk-amma.
 
Jóla Lóla er nýtt og skemmtilegt ævintýri fyrir börn á öllum aldri með söngvum eftir leikhópinn og tónlistarmennina Jóa Pé og Króla. Leikritið er einnig eftir leikhópinn og leikstjórann Berg Þór Ingólfsson leikhússtjóra Leikfélags Akureyrar, sem hefur leikstýrt m.a. Bláa Hnettinum, Mary Poppins og Matthildi í Borgarleikhúsinu og seinasta vetur Litlu Hryllingsbúðinni hjá Leikfélagi Akureyrar. Leikarar eru Urður Bergsdóttir, Hólmfríður Hafliðadóttir og Hjalti Rúnar Jónsson, sem öll eru áhorfendum Leikfélagsins að góðu kunn.
Sýningin er um klukkustundar löng.

 
Skoða leikskrá
 
Sýningin verður sýnd í Samkomuhúsinu í desember og heyrst hefur að allir jólasveinarnir berjist um að fá að setja gjafabréf á sýninguna í skóinn hjá börnunum.

Myndasafn

Leikskrá

Secret Link