Ljós í myrkri

Stórviðburður í Hofi!

Staðsetning

Hamraborg, Hofi

Dagsetning

2. apríl 2026

Ljós í myrkri – Stórviðburður í Hofi

Stórviðburður í Hofi
Eftir að Akureyringurinn og kvikmyndatónskáldið Atli Örvarsson sagði skilið við hljómsveitarlífið á Íslandi fór hann erlendis og stundaði nám í hinum virta Berklee háskóla með höfuðáherslu á kvikmyndatónlist. Í beinu framhaldi kláraði hann mastersnám í North Carolina School of Arts. Síðan þá hefur hann samið og útsett tónlist fyrir kvikmyndir og sjónvarpsþætti við mjög góðan orðstír og er hann í dag eitt eftirsóttasta kvikmyndatónskáld í heimi.

Hann hefur verið tilnefndur til Grammy verðlauna og í lok apríl 2024 fékk hann BAFTA verðlaunin fyrir tónlistina í sjónvarpsþáttunum Silo sem sýndir eru á sjónvarpsveitu Apple, Apple TV+.

Hér lýsir Atli sjálfur hvernig hljóðheimur Silo varð til

Atli mun stýra Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í flutningi á tónlist úr þáttunum og einnig mun Ljós í myrkri, nýtt verk eftir Atla verða frumflutt.

Hljómsveitarstjóri: Atli Örvarsson
Kór: Kór Akureyrarkirkju 
Einsöngur: Þórhildur Örvarsdóttir.

Secret Link