Upplausn og blómgun

María Sigríður Jónsdóttir er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám við
Ríkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998.

María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar
sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu sína við Ísland.
Í verkunum sem eru aðallega unnin með olíu á striga, vinnur hún með áhrif frá
ítalska endurreisnartímabilinu og hráan kraft íslenskrar náttúru og birtu. Hún
hefur haldið einkasýningar sem og tekið þátt í samsýningum, bæði á Íslandi
og á Ítalíu. Verk hennar á þessari sýningu endurspegla þetta stöðuga samtal
á milli tveggja landa, þar sem hún vinnur með klassísk form, birtu og hringrás
náttúrunnar á kraftmikinn og ljóðrænan hátt.

Um verkin segir María “ Á sýningunni Upplausn og blómgun leitast ég við að
fanga það sem liggur á mörkum hins sýnilega og hins dulda, þar sem lífræn
form náttúrunnar breytast í innra hugarástand. Form blómsins og hvernig það
breytist í tímans rás fylgir þeirri tilfinningu sem ég ber í hjartanu. Með því að
vinna með olíu og terpentínu á striga leyfi ég efninu að ráða för, ég leyfi
litnum að leysast upp, flæða, renna og leita eigin leiða, hömlur hverfa og eftir
standa hughrif. Formin fæðast hægt og rólega úr mörgum lögum af lit, áferð
og hreyfingu. Verk mín endurspegla þannig stöðugt samtal á milli þess sem
var og nýs veruleika sem hefur í för með sér upplausn en um leið nýja sýn, ný
tækifæri og blómgun.”

Í nýjustu verkunum fá blómaformin á sig dularfyllri og óræðari blæ, þar sem
lóðréttu, rennandi línurnar flæða niður flötinn eins og tímans rás eða hrein
rigning sem bæði máir út og dregur fram kjarna formsins í senn.
Á sýningunni er innsetning af hringlaga málverkum þar sem raunsætt
blómaformið verður eins konar náttúruleg mandala, tákn um miðju, kyrrð og
hið óendanlega þar sem gott er að staldra við og íhuga.

Þessi ólíku verk af brothættum formum tilverunnar skapa sjónrænan óð til
innri blómgunar, fegurðar og krafts til að leysa upp og breyta því sem þarf að
breyta.

Sýningin stendur til 17. janúar 2027 

Svæði

Hamragil

Verð

Enginn aðgangseyrir

Dagsetning

7. nóvember

Tími

15:00

Secret Link