Undir sömu stjörnu
✨Einvalalið listamanna rekur sögu óperunnar og flytur nokkrar fegurstu perlur óperusögunnar. Einstakur menningarviðburður sem enginn ætti að missa af.
Svið
Leikstjórn
Stórviðburður í Hofi
Sama ár og þjóðskáldið Jónas Hallgrímsson orti ljóð sitt um „Ástarstjörnu yfir Hraundranga“ samdi Richard Wagner óperuaríu til „Kvöldstjörnunnar“ sunnar í Evrópu. Var það mögulega sama tindrandi himinstjarnan sem kveikti hugmyndir beggja?
Í þessari aðgengilegu og upplyftandi söngdagskrá er saga óperunnar rakin, frá endurreisn til okkar daga, allt frá hirðsölum Ítalíu að Íslandsströndum.
Fram koma: Kristín Einarsdóttir Mäntylä sópran, Hildigunnur Einarsdóttir messó-sópran, Gunnar Björn Jónsson tenór, Kristján Ingi Jóhannesson barítón, Jónína Björt Gunnarsdóttir, sópran, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Kór Akureyrarkirkju, Kammerkór Norðurlands, og stórleikararnir Örn Árnason og Ólafía Hrönn Jónsdóttir.
Handrit og leikstjórn er í höndum Ólafs Egils Egilssonar og tónlistarstjóri Óperunnar, Richard Schwennicke, stjórnar hljómsveit.
Frumsýnt verður í Hofi 18. október í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar. Viðburðurinn verður einnig fluttur á Eskifirði, í Skálholti, í Reykjanesbæ og síðar í Þjóðleikhúsinu.