Urta söguljóð
Urta – söguljóð er nýtt tónverk (2024-2025) eftir Ingibjörgu Azimu, samið við samnefnda ljóðabók Gerðar Kristnýjar sem út kom árið 2022. Tónverkið er samið fyrir sópran, píanó, horn, pákur og slagverk og var frumflutt á óperudögum í Hafnarhúsinu í október 2025. Söguljóðið segir frá lífsbaráttu formóður ljóðskáldsins norður á Ströndum fyrir rúmri öld síðan.
Svið
Hamrar
Verð
Miðasala hefst þegar nær dregur
Dagsetning
18. apríl 2027
Tími
16:00